
No events at the moment
Félagsmiðstöðvar í Fjarðabyggð
Félagsmiðstöðvunum er ætlað að mæta þörf þrettán til sextán ára unglinga í 8. til 10. bekk fyrir uppbyggilegt og gefandi félagsstarf í frítíma þeirra. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfinu og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Í öllum félagsmiðstöðvum starfa unglingaráð sem móta viðfangsefni líðandi stundar í félagsmiðstöðinni og eru málsvarar unglinganna. Forvarnir meðal unglinga er snúa að reykingum, áfengi og öðrum vímugjöfum auk forvarna gegn einelti er stór þáttur í starfinu. Það kostar ekkert að koma í félagsmiðstöðina á opnunartíma. Kostnaði vegna dansleikja, tónleika og annarra viðburða er haldið í lágmarki. Ferðalög eru yfirleitt greidd með fjáröflun unglinganna.
Félagsmiðstöðvarnar í Fjarðabyggð eru opnar þrisvar í viku að jafnaði á starfstíma skólanna frá ágúst til maí.
